Matargat
Synopsis
Þau Ylfa og Máni standa vaktina í eldhúsinu og kenna okkur hvernig á að elda og baka ýmislegt góðgæti. Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir. Umsjón: Ylfa Blöndal og Hilmar Máni Magnússon. Ylfa og Máni útbúa Mexíkó veislu. Einfalt, hollt og rosa gott. 500 gr nautahakk eða 500 gr sojahakk. 2 tsk krydd að eigin vali. Settu hakkið á sitt hvora pönnuna, kryddaðu og steiktu þar til það er eldað í gegn (orðið dökk brúnt á lit). Vefjur, nachos snakk. rifinn ostur salsa sósa. sýrður rjómi, gúrka, paprika, tómatar. Skerðu grænmetið í litla bita og settu í skálar eða á disk. Snakkið, osturinn, salsa sósan og sýrði rjómin er líka hægt að setja í skálar. Guacamole, 2 stór Avocado, 2 tómatar - hreinsa innan úr þeim, Steinselja / kóríander, 1x lítill Hvítur laukur / rauðlaukur, 2 hvítlauksrif (má sleppa), Lime safi, salt og pipar eftir smekk. Stappaðu avocado Skerðu laukinn og tómatana Pressaðu hvítlaukinn út í með hvítlaukspressu Saxaðu steinselju eða kóríander smátt Settu smá lime, salt og pipar Og smá af góðri ólífuolíu Hrærðu allt saman. Búðu svo til mexíkóvefju eins og þér þykir best!