Divertissement
Gettu betur 1998
Synopsis
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1998. Spyrill: Davíð Þór Jónsson. Dómari og spurningahöfundur: Gunnsteinn Ólafsson. Stigavörður: Katrín Jakobsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason. Í þessum þætti mætast lið Bændaskólans á Hvanneyri og Menntaskólans við Hamrahlíð í seinni undanúrslitum. Lið Bændaskólans á Hvanneyri skipa Guðni Ragnarsson, Sigurður Erlingsson og Torfi H. Björnsson. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Fjalar Hauksson, Inga Þóra Ingvarsdóttir og Oddur Þórir Þórarinsson.