Divertissement

Absolutely Anything

Synopsis

Stórskemmtileg gamanmynd með einvalaliði leikara. Við kynnumst hér nokkrum geimverum sem ætla sér að eyða Jörðinni með manni og mús. Fyrst ákveða þær samt að gera tilraun sem felst í að gæða eina mannveru þeim hæfileikum að fá allar sínar óskir samstundis uppfylltar, sama hverjar þær eru. Fyrir valinu verður kennarinn Neil Clarke (Simon Pegg) sem veit vart hvaðan á hann stendur veðrið þegar óskir hans byrja skyndilega að rætast hver á eftir annarri. Fljótlega fer hann þó að kunna að meta þessa nýju hæfileika, en veit auðvitað ekki að ef hann freistast til að nota óskirnar í illum tilgangi verður honum og Jörðinni umsvifalaust eytt.

La suite sur Stöð 2