Divertissement
Börn þjóða
Synopsis
Hver er upplifun Íslendinga af erlendum uppruna af íslensku samfélagi? Eru Íslendingar fordómafull þjóð? Logi Pedro leitar svara og sest niður í sófanum heima með einstaklingum sem allir eiga það sameiginlegt að vera Íslendingar, búsettir á Íslandi, og af erlendu bergi brotnir. Ljósi er varpað á samfélagslegan reynsluheim hvers og eins viðmælanda, uppeldi og búsetu í samfélagi á norðurhjara veraldar og upplifun af því að eiga ólíkan menningarlegan og kynþáttalegan bakgrunn frá hinum "hefðbundna" Íslendingi.